Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Tækniþróunarsjóður » Markáætlun um þróunarverkefni í samstarfi við opinbera kaupendur

Klasasamstarf á þremur sviðum; „Betri lausnir fyrir minna fé“

Markáætlun um þróunarverkefni í samstarfi við opinbera kaupendur á sviði menntamála, heilbrigðismála og orku- og umhverfismála.

Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga 5. maí 2011 er ákveðið að „efna til klasasamstarfs og að efla samkeppnissjóði á sviði menntamála, heilbrigðis- og velferðamála, orku- og umhverfismála á grundvelli útfærðra hugmynda Samtaka iðnaðarins“.

Hluti iðnaðarmálagjalds sem var innheimt fyrir árið 2010 er ráðstafað í þessa áætlun á fyrsta ári. Gert er ráð fyrir að framlag annars og þriðja árs verði tryggt á fjárlögum.

Umsókn

Verkefnin lúta sömu reglum og gilda um almenna verkefnisstyrki Tækniþróunarsjóðs og eru umsóknargögnin þau sömu, en hér er gerð grein fyrir undantekningum. Sú krafa er gerð að opinber kaupandi verði að vera beinn aðili að umsókninni og það komi skýrt fram að hann leggi til a.m.k. 25% þróunarkostnaðar. Framlag hins opinbera aðila getur verður að nokkru leyti í formi vinnuframlags og í framlagi annarra verðmæta sem snerta verkefnið beint. Það verður að gera skýra grein fyrir framlaginu og í hverju það felst ef ekki er um bein fjárframlög að ræða. Þá verður umsækjandi að gera grein fyrir í hverju hin nýja þjónusta fellur undir markmiðið „betri lausnir fyrir minna fé“.

Hámarksstyrkur Tækniþróunarsjóðs er 10 milljónir á ári eða 30 milljónir til þriggja ára. Sjóðurinn styrkir að hámarki 25% viðurkennds kostnaðar og er viðurkenndur kostnaður hinn sami og í almennum verkefnisstyrkjum sjóðsins.

Umsóknargögn og leiðbeiningar má finna á vefsíðu Rannís/Tækniþróunarsjóðs. Í rafrænni skráningu umsóknar þarf að velja tegund styrks, liður 1.5 Tegund styrks og fjöldi ára. Þegar tegundin er valin og búið að vista má sjá í næsta kafla 1.6 Verkefni í hnotskurn innsláttarsvæði þar sem gerð er grein fyrir sparnaði í opinbera rekstrinum. Þá þarf að fylla út upplýsingar um opinbera kaupandann í 2.5 og kostnaðaryfirlit hans í 3.5. Að öðru leyti er umsóknin eins og hefðbundin umsókn um verkefnisstyrk.

Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2011. Lokað verður fyrir nýskráningu umsókna kl 17:00 en umsækjendum sem enn eru með umsókn í vinnslu gefinn kostur á að klára skráningu fram til miðnættis þann sama dag.

Mat og úthlutun

Hefðbundið mat Tækniþróunarsjóðs er notað. Tekið verður tillit til þeirra krafna sem felast í tilgangi áætlunarinnar og er sérstök áhersla lögð á verðmætasköpun og aukið hagræði opinbera kaupandans. Niðurstaða fagráðs er lögð fyrir stjórn sjóðsins og ákveður stjórnin úthlutunina og er hún ekki bundin af niðurstöðu fagráðs.

Umsóknir sem ekki standast mat og þar með kröfur áætlunarinnar er vísað frá. Fyrst um sinn er gert ráð fyrir að styrkfé skiptist jafnt á sviðin þrjú. Ef ekki tekst að úthluta að fullu á hvert svið er gefinn kostur á að sækja um aftur hinn 1. apríl 2012. Ef ekki tekst heldur að úthluta þá rennur óráðstafað fé inn í almenna verkefnisstyrki sjóðsins. Úthlutun framhaldsstyrkja fyrir annað og þriðja ár er háð sérstöku framlagi á fjárlögum. Ekki verður tekið fé af almennum styrkjum sjóðsins til að bæta upp þessa áætlun ef fjárlög duga ekki til að standa við framhaldsumsóknir fyrir annað og þriðja ár.

Annað

Varðandi tilurð og tilgang þessarar markáætlunar er vísað á hugmyndir Samtaka iðnaðarins um „betri lausnir fyrir minna fé“. Þá hafa samtökin staðið fyrir stefnumótum og upplýsingafundum um tækifæri til nýsköpunar á þessum sviðum þar sem opinberir kaupendur eru beinir aðilar að verkefnunum. Starfsmenn SI veita almennar upplýsingar um áætlunina en starfsmenn Tækniþróunarsjóðs eru ávallt til taks varðandi öll atriði sem snerta þessa áætlun og umsóknina sjálfa.

Hér er verið að reyna nýjar leiðir í nýsköpun og því ljóst að umsækjendur sem og sjóðurinn sjálfur eru að prófa sig áfram að nokkru leyti. Það þarf því eflaust að slípa til bæði útfærsluna og umsóknarferlið. Staðan verður metin að loknum þessum umsóknarfresti og ferlið endurbætt ef þarf fyrir umsóknarfrestinn 1. apríl – ef síðari umsóknarfrestur verður haldinn.


  • Rannís
  • Rannís
<