Slóð:
Forsíða » Sjóðir » Tækniþróunarsjóður » Umsókn og upplýsingar » Umsóknargögn » Rafræn skráning umsóknarRafræn skráning umsóknar í Tækniþróunarsjóð
Vinsamlegast athugið vandlega eftirtalin atriði áður en þið hefjið rafræna skráningu:
- Skylda er að senda inn skjölin Viðskiptaáætlun og Útreikningar sem viðhengi í skráningu umsækjenda.
- Ef skjalið Viðskiptaáætlun er lengra en 25 blaðsíður verður umsókn vísað frá án frekari yfirlestrar. Sjá nánar í leiðbeiningum Tækniþróunarsjóðs.
- Allar upphæðir skal skrá í þúsundum króna.
- Notið hvorki punkta né kommur þegar upphæðir eru skráðar. Nota má punkt (en ekki kommu) þegar ársverk eru skráð.
- Tenging við kerfið rofnar (timeout) ef engin breyting er gerð í einhvern tíma, engar upplýsingar glatast þó ef þess er vandlega gætt að vista eftir hvern lið. Ef slíkt hendir þurfa notendur að skrá sig inn aftur.
- Kerfið opnast í enskum ham. Vinsamlegast smellið á íslenska fánann neðst til vinstri. Þegar komið er inn í vistaða umsókn opnast kerfið í þeim ham sem síðast var vistað í.
- Gætið þess vandlega að vista eftir hvern lið!
- Ef umsækjandi vill skrá sig inn í umsóknarkerfi Rannís undir kennitölu og veflykli fyrirtækis en ekki einstaklings má finna upplýsingar um hvernig það er gert hér.
- Leiðbeiningar fyrir rafræna skráningu umsókna.

English


