Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Verkefnalisti Tækniþróunarsjóðs

23.6.2006

Íslenskur textaskimi

Dæmi um notkun textaskima eru t.d.:

  • Auðkenning allra nafna (s.s. mannanafna, fyrirtækjaheita, örnefna, o.þ.h.) úr texta
  • Skimun eftir völdum efnisorðum í fyrirspurnum (t.d. orða eins og "útsvar", "tollar", eða vöruheita í fyrirspurn til Skattstjóra).
  • Víð efnisorðaskimun á vefsíðutexta, þar sem t.d. er leitað eftir nöfnum tónlistarmanna, áfangastöðum flugfélaga og bókartitlum. Slíka greiningu má t.d. nota til að birta auglýsingar sem tengjast efni viðkomandi síðu.

Skiminn opnar nýja möguleika í textavinnslu á íslensku, hvort sem er á Vefnum eða við útgáfu bóka eða tímarita.

Verkefnið miðast við almenna lausn á vandamálinu, en lögð sérstök áhersla á fyrri liðina tvo sem nefndir eru að ofan. Afraksturinn verður verðmæt söluvara, en skilar um leið mikilvægri einingu í svokallaðan málfræðimarkara sem unnið er að hjá Orðabók Háskólans.
Rannsóknartími 1 ár.

Verkefnisstjóri er  Hjálmar Gíslason, netf.: hjalli@spurl.net
Umsjónarmaður Rannís er Snæbjörn Kristjánsson, netf.: skr@rannis.is
Fréttasafn

Slóð:

Forsíða » Sjóðir » Tækniþróunarsjóður » Verkefnalisti

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta