Verkefnalisti Tækniþróunarsjóðs
9.5.2007
Betri nýting vatns í bleikjueldi
Vatnsþörf í fiskeldi er óhemju mikil og það sem endanlega takamarkar stærð og framleiðslugetu fiskeldisstöðva er aðgengi að heitu og köldu vatni. Markmið verkefnisins er að prófa ódýra og einfalda leið til þess að draga úr vatnsnotkun í bleikjueldi. Gert er ráð fyrir því að hægt sé að nýta vatn í bleikjueldi fjórfalt betur en nú er gert. Með því að nýta vatnið betur má auka framleiðslu fiskeldisstöðvanna án þess að aflað sé meira vatns. Annar kostur við betri nýtingu á eldisvatni er að víða draga úr sveiflum í hitastigi og hækka eldishita, en hvort tveggja leiðir til betri vaxtar hjá fiskunum.
Áætlað er að verkefnið taki 2 ár - byrjunarár 2007.
Verkefnisstjóri: Ragnar Jóhannsson, Matís ohf., ragnar@matis.is.
Umsjónarmaður Rannís: Oddur Már Gunnarsson, omg@rannis.is.
Nr. 071226007.
| Fréttasafn |



