Verkefnalisti Tækniþróunarsjóðs
21.11.2004
Hreistur og Astaxanthin - HRAX
Yfirmarkmið verkefnisins HRAX er að framleiða frumgerð af dýru ofurfæðulyfi á 9 mánuðum sem unnið er úr fiskúrgangi. Þetta næst með fínmölun karfahreisturs og bestun á aðsogi litarefnisins astaxanthin (AX) á hreistrið, rannsóknum á karfahreistri sem kalk- og kollagen-gjafa og prófunum á leysni og upptöku þessara efna í mannslíkama. Einnig með rannsókn á besta framleiðsluformi fæðulyfsins. Mikil eftirspurn er eftir AX sem líklegri krabbameinsvörn, til styrkingar ónæmiskerfis og sem vörn gegn öldrunarsjúkdómum og kalki á heppilegu formi til upptöku í mannslíkama til varnar gegn beinþynningu. Útsöluverðmæti þessa fæðulyfs með AX úr íslenskum rækjuvinnslum getur numið 16,7 milljörðum kr. árlega. Rannsóknir og einkaleyfisferli hefur alls kostað 14,3 milljónir kr. til þessa. Lágmarksáhætta er fólgin í HRAX vegna vandaðra rannsókna sem að baki liggja, auk þess sem umsækjendur og undirverktakar búa yfir þekkingu og eru vel búnir tækjum og aðstöðu. Lýsi sér með þessu möguleika á því að auka rannsóknir og vöruframboð fyrirtækisins fyrir nýjar og mjög verðmætar afurðir.
Verkefnisstjóri er Jón ögmundsson, netf.: jonogmunds@lysi.is
Umsjónarmaður Rannís er Oddur Már Gunnarsson, netf.: omg@rannis.is
| Fréttasafn |



