VÍSINDAVAKA - stefnumót við vísindamenn
Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu vísindagreinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Öll fjölskyldan finnur eitthvað við sitt hæfi á Vísindavöku, en hún er haldin samtímis um alla Evrópu á Degi evrópska vísindamannsins, sem er síðasta föstudag í september. RANNÍS stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi. Vísindavaka 2010 verður haldin föstudaginn 24. september í Listasafni Reykjavíkur kl. 17:00-22:00.
Í aðdraganda Vísindavöku 2010 verður hellt upp á fjögur Vísindakaffi 20., 21., 22., og 23. september. Þar kynna nokkrir fræðimenn viðfangsefni sín fyrir almenningi, og gefst fólki kostur á að spyrja þá spjörunum úr. Vísindakaffikvöldin eru óformleg og skemmtileg skoðanaskipti milli fræðimanna og gesta. Einnig verður blásið til teiknisamkeppni fyrir börn og veggspjaldasamkeppni. Nánari upplýsingar um einstaka dagskrárliði Vísindavöku eru í flipunum hér til vinstri, en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu RANNÍS í síma 515 5800 eða í netfangi alla@rannis.is
22.6.2010
Viltu taka þátt í Vísindavöku 2010?
Vísindavaka 2010 - stefnumót við fræðimenn verður haldin föstudaginn 24. september nk. í Listasafni Reykjavíkur. Stofnanir, háskólar og fyrirtæki sem hafa áhuga á að vera með sýningarbás á Vísindavökunni geta nálgast kynningarbréf og skráningarblað hér.
6.10.2009
Myndir frá Vísindavöku 2009
29.9.2009
Vísindavaka slær í gegn
VÍSINDAVAKA 2010
föstud. 24. september
Í Listasafni Reykjavíkur
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rannís, sími 515 5800, netfang alla@rannis.is







