Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir Vísindavöku

22.8.2008

Ljósmyndasamkeppni unga fólksins

Í tilefni af vísindavöku 26. september 2008 efnir Rannís til ljósmyndamkeppni meðal ungs fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera "vísindin í daglegu lífi".

 

Markmiðið með ljósmyndakeppninni er að vekja ungt fólk til umhugsunar um þau miklu áhrif sem vísindin hafa á daglegt líf okkar allra. Síðasti skiladagur mynda er 15. september 2008. Myndum skal skila rafrænt í netfangið alla@rannis.is eða á geisladiskum til Rannís, Laugavegi 13, 101 Reykjavík. Nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer skal fylgja myndunum. 
Myndir mega vera á .jpg eða .tif formi en án layera eða maska.

Verðlaun verða veitt á Vísindavöku 2008 sem haldin verður í Listasafni Reykjavíkur 26. sept nk. Einnig verða allar myndirnar þar til sýnis.


VÍSINDAVAKA 2011
föstud. 23. september kl. 17:00-22:00
Í Háskólabíói

 

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rannís, sími 515 5800, netfang alla@rannis.is

 

Vísindavökublogg

 

Vísindavaka á Facebook

 

Myndband frá Vísindavökunni frá 2010.


Vísindavaka