Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Fréttir Vísindavöku

24.9.2009

Vísindakaffi á Akureyri og Sauđárkróki í kvöld um vaxtarbrodda og vísindi

Tvö Vísindakaffi verða haldin á Norðurlandi í kvöld í tengslum við Vísindavöku 2009. Vísindakaffið á Akrueyri ber yfirskriftina: "Mun Eyjafjörður verða helsti vaxtarbroddur Íslands?" og er haldið á Friðriku V., og á Sauðárkróki er titill Vísindakaffisins "Er vit í vísindum á landsbyggðinni? - Hvert er förinni heitið?" en það er haldið á Kaffi Krók.

Spekingarnir sem hefja spjallið á Akureyri koma frá Háskólanum á Akureyri, en það eru þeir Hreiðar Þór Valtýsson lektor, Jón Þorvaldur Heiðarsson lektor og Steingrímur Jónsson prófessor. Pétur Halldórsson útvarpsmaður hjá Ríkisútvarpinu stýrir umræðum. Á Sauðárkróki býður Háskólinn á Hólum til almennra kaffispjalls um hlutverk vísinda á landsbyggðinni og mun Þórarinn Sólmundarson frá þróunarsviði Byggðastofnunar stýra umræðum.

VÍSINDAVAKA 2011
föstud. 23. september kl. 17:00-22:00
Í Háskólabíói

 

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rannís, sími 515 5800, netfang alla@rannis.is

 

Vísindavökublogg

 

Vísindavaka á Facebook

 

Myndband frá Vísindavökunni frá 2010.


Vísindavaka