Fréttir Vísindavöku
24.9.2009
Forvarnir í læknisfræði ræddar á Vísindakaffi í kvöld
Dr. Jóhann Ágúst Sigurðsson yfirlæknir Þróunarstofu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Dr. Linn Getz trúnaðarlæknir á LSH og dósent við læknadeild Norwegian University of Science and Technology, velta upp spurningum um gildi forvarna á Vísindakaffinu í kvöld, sem haldið verður á Súfistanum í Iðuhúsinu Lækjargötu kl. 20:00-21:30.
Forvarnarstarf og heilsuvernd eru af hinu góða. Hins vegar hefur verið varað við því í virtum fagtímaritum á undanförnum árum að ýmsar heilsutengdar aðgerðir í nafni forvarna hafa verið gerðar að söluvöru og þar með heilbrigðisþjónusta að markaðstorgi þar sem megin áhersla er lögð á sölu á þjónustu til hinna frísku á kostnað þeirra veiku. Í slíkum tilvikum er gert meira úr vandamálinu en efni standa til og boðið upp á úrlausnir sem geta verið kostnaðarsamar, vafasamar eða siðferðilega umdeildar. Þessi aðferð hefur verið kennd við ,,völd góðmennskunnar" (Power of Goodness), en með því hugtaki er vísað til þeirra valda eða áhrifa sem til dæmis heilbrigðisstéttir geta fengið með því að telja fólki trú um að aðgerðir þeirra og úrlausnir séu alltaf til góðs. Líkanarannsóknir á fjölmörgum klíniskum leiðbeiningum í læknisfræði benda sterklega til þess að of mikið sé gert úr vandamálinu í þá veru að næstum allir fullorðnir verði skilgreindir sem sjúkir og þurfi að vera undir stöðugu eftirliti lækna. Hvaða afleiðingar hefur slíkt ofmat á þjóðarsálina, útgjöld til heilbrigðismála, lyfjanotkun, mannafla, verkaskiptingu heilbrigðisstétta og heilsu fólks svo eitthvað sé nefnt. Lausnirnar gagnvart einstaklingum felast m.a. í að upplýsa fólk sem mest um kosti og galla forvarna, þannig að það geti tekið virkan þátt í að hafa árif á heilsu sína.
VÍSINDAVAKA 2011
föstud. 23. september kl. 17:00-22:00
Í Háskólabíói
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rannís, sími 515 5800, netfang alla@rannis.is







