Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir Vísindavöku

19.9.2011

Vísindakaffi kvöldsins: Að fæðast - hættulegasta ferðalagið?

Dr. Brynjar Karlsson, dósent við Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík fjallar um burðarmálsdauða á Íslandi, sem er með því allra lægsta sem gerist í heiminum. Hins vegar er burðarmálsdauði álíka mikill og fjöldi dauðsfalla í umferðinni á hverju ári og þar af leiðandi gríðarlega stórt heilbrigðisvandamál. Sjá frétt RÚV frá 12. sept. um þessa nýju tækni.

 Dr. Brynjar Karlsson mun velta upp hverjar eru helstu orsakir burðarmálsdauða og segja frá rannsóknum sem miða að því að búa til tækni sem gerir kleift að meta betur ástand fósturs og einnig til að meta betur hættu á fyrirburafæðingum.


VÍSINDAVAKA 2011
föstud. 23. september kl. 17:00-22:00
Í Háskólabíói

 

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rannís, sími 515 5800, netfang alla@rannis.is

 

Vísindavökublogg

 

Vísindavaka á Facebook

 

Myndband frá Vísindavökunni frá 2010.


Vísindavaka