Fréttir Vísindavöku
20.9.2011
Vísindakaffið í kvöld: Kuldinn síðasta sumar afsannar hlýnun jarðar!...er það ekki?
Vísindakaffi gærkvöldsins " Að fæðast - hættulegasta ferðalagið?" , í umsjá Dr. Brynjars Karlssonar, dósents við HR tókst með afbrigðum vel og var fullt út úr húsi á Súfistanum. Vísindakaffi kvöldsins fjallar hins vegar um gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar, kal í túnum og hafís.
Dr. Halldór Björnsson, verkefnastjóri hjá Veðurstofu Íslands hefur umsjón með umföllunarefni kvöldsins en
vísindamenn halda því fram að aukin gróðurhúsaáhrif valdi því að yfirborð jarðar sé að hlýna. Samt var síðasta sumar kalt. Gengur þetta upp? Halldór ræðir meðal annars um gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar, kal í túnum og hafís.
VÍSINDAVAKA 2011
föstud. 23. september kl. 17:00-22:00
Í Háskólabíói
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rannís, sími 515 5800, netfang alla@rannis.is







