Fréttir Vísindavöku
21.9.2011
Vísindakaffi kvöldsins: Sagnfrćđingar eru frá Mars, valdhafar frá Venus. Af hverju getum viđ ekki veriđ sammála um söguna?
Þekking á liðinni tíð er til margra hluta nytsamleg, eða svo segja að minnsta kosti margir. Dr. Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur fjallar um nýtingu sögunnar á Íslandi, allt frá landnámi til okkar daga. Ari fróði sagðist vilja hafa það sem sannara reynist en var það nú satt? Fyrir hvern skrifaði hann? Á hinn bóginn má líka spyrja hvers vegna sagnfræðingar samtímans ættu að nöldra svona um stórmenni sögunnnar. Skilja þeir ekki að sagan á að sameina okkur, gera okkur stolt af afrekum forfeðranna? Segjum að sagnfræðingar séu frá Mars og valdhafar frá Venus. Er þá nokkuð hægt að mætast á miðri leið? Í hvaða tómarúmi yrði það eiginlega?
VÍSINDAVAKA 2011
föstud. 23. september kl. 17:00-22:00
Í Háskólabíói
Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rannís, sími 515 5800, netfang alla@rannis.is







