Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir Vísindavöku

23.9.2011

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN VÍSINDAMENN!

Vísindavaka 2011 verður haldin í dag föstudaginn 23. september í Háskólabíói kl. 17-22. Rannsóknamiðstöð Íslands, RANNÍS, stendur fyrir Vísindavöku en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu í tengslum við Dag vísindamannsins. Evrópusambandið styrkir verkefnið, en Vísindavaka verður haldin samtímis í fjölmörgum borgum Evrópu. Sjá evrópska heimasíðu verkefnisins.

Markmiðið með Vísindavökunni er að færa vísindin nær almenningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Verður það gert með lifandi kynningum og boðið upp á skemmtilega og fræðandi viðburði fyrir alla fjölskylduna. Allar vísindagreinar eru kynntar á Vísindavöku, hugvísindi jafnt sem raunvísindi.


VÍSINDAVAKA 2011
föstud. 23. september kl. 17:00-22:00
Í Háskólabíói

 

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rannís, sími 515 5800, netfang alla@rannis.is

 

Vísindavökublogg

 

Vísindavaka á Facebook

 

Myndband frá Vísindavökunni frá 2010.


Vísindavaka