Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Fréttir Vísindavöku

26.9.2011

Fýluböllurinn eftirminnilegur sveppur

Fréttastofa RÚV mætti á Vísindavöku sl. föstudag og tók tal af Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur, doktor í sveppafræðum. Í frétt á www.ruv.is segir:

Í bás Náttúrufræðistofnunar er sérstök kynning á sveppum. Þar má finna sníkjusveppi, samlífssveppi og rotsveppi. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir er doktor í sveppafræðum. „Við erum með rotnandi gorkúlur sem eru sjálfar rotnandi, rotsveppir. Svo erum við með sýnishorn af líkama svepps þar sem hann vex á viðarsneið.“

Guðríður varar við mörgum sveppum sem eru slæmir og sumir hverjir baneitraðir. „Svo eru einstaka sveppir, sem að maður lærir þá að þekkja, sem eru sérstaklega góðir og renna ljúflega niður og fara vel í maga.

Guðríður á erfitt með að gera upp á milli sveppanna og nefna sinn uppáhaldssvepp. „Þó að ég hafi verið að dunda mér við að horfa á sveppi síðan svona 1981 að þá sé ég yfirleitt alltaf eitthvað nýtt og það er það skemmtilega.“Hún segir þó marga þeirra mjög eftirminnilega ekki síður fyrir hegðun en útlit. Sumir þeirra vaxi svo hratt að það heyrist. Ullblekillinn breyti sér í svarta tjöru og beri þannig gró sín.

 Fýluböllurinn sé líka eftirminnilegur fyrir hegðun sína og nafn. „Nú, hann lítur út eins og typpi og svo er fýla af honum, ýldufýla, þannig að þetta er mjög vel við hæfi. Og latneska heitið Fallus Impudikus þýðir þetta líka, þannig að þetta er bara bein þýðing.“

Hér má svo sjá fréttina í sjónvarpsfréttatíma RÚV sl. föstudag 23. september kl. 19.


VÍSINDAVAKA 2011
föstud. 23. september kl. 17:00-22:00
Í Háskólabíói

 

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður Jónsdóttir hjá Rannís, sími 515 5800, netfang alla@rannis.is

 

Vísindavökublogg

 

Vísindavaka á Facebook

 

Myndband frá Vísindavökunni frá 2010.


Vísindavaka