Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Teiknisamkeppni fyrir börn

Í aðdraganda Vísindavöku 2010 efnir Rannís til teiknisamkeppni barna 6-9 og 10-12 ára. Þema keppninnar er "Vísindin í daglegu lífi" eða "Vísindamaðurinn minn". Markmiðið er að vekja börnin til umhugsunar um ímynd vísindamannsins og þau miklu áhrif sem vísindin hafa á daglegt líf okkar allra.

Síðasti skiladagur mynda er 16. september 2010. Myndirnar skal senda til Rannís, Laugavegi 13, 101 Reykjavík og merkja þær með fullu nafni barns, aldri, heimilisfangi og símanúmeri ásamt nafni forráðamanns og netfangi. Myndirnar geta verið af öllum stærðum og gerðum.

Verðlaun verða veitt í tveimur aldurshópum á Vísindavöku 2010 sem haldin verður í Listasafni Reykjavíkur 24. sept nk. Einnig verða allar myndirnar þar til sýnis.

Dómnefnd teiknisamkeppninnar skipa: Aðalheiður Jónsdóttir og Katrín Valgeirsdóttir frá alþjóðasviði Rannís og Ragnar Arnljótsson og María Margeirsdóttir, grafískir hönnuðir á auglýsingastofunni Hnotskógi.



Vísindavaka