Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Vísindavaka

Vísindavaka – stefnumót við vísindamenn

Vísindavaka 2011 verður haldin föstudaginn 23. september 2011 í Háskólabíói. Rannsóknamiðstöð Íslands, RANNÍS, stendur fyrir Vísindavöku en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu í tengslum við Dag vísindamannsins. Evrópusambandið styrkir verkefnið, en Vísindavaka verður haldin samtímis í fjölmörgum borgum Evrópu. Sjá evrópska heimasíðu verkefnisins. 

Markmiðið með Vísindavökunni er að færa vísindin nær almenningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Verður það gert með lifandi kynningum og boðið upp á skemmtilega og fræðandi viðburði fyrir alla fjölskylduna. Allar vísindagreinar eru kynntar á Vísindavöku, hugvísindi jafnt sem raunvísindi. 

Atriði á sviði í bíósölum 1 og 2 í Háskólabíói 23. september, kynnar verða Felix Bergsson og Inga Lind Karlsdóttir.

Kl.

SALUR 1

Kl.

SALUR 2

17:30

Sprengjugengið!!  
Sprengjugengið er djarfur hópur efnafræðinema við Háskóla Íslands sem vakið hefur landsathygli fyrir háskalegar efnafræðisýningar á heimsmælikvarða. Ótrúlegar litasjónhverfingar, óvenjulegar gastegundir og ógurlegar sprengingar eru aðalsmerki Sprengjugengisins.

17:50

Hvernig virka gervifætur? - Össur 
Sigurður Gunnar Gissurarson. 

18:00

Þegar matur er meinsemd - fæðuofnæmi. 
Flytjandi Michael Clausen.

18:10

Eldorgelið 
Ari Ólafsson lætur gasloga eldorgelsins dansa og spila í takt við tónlist.

18:20

Sköpun karaktera í tölvuleikjum.  
Hinrik Haraldsson frá CCP.

18:30

Er hægt að rækta lungu? 
Ólafur Baldursson, Þórarinn Guðjónsson og Magnús Karl Magnússon kynna.

18:50

Stjörnuhimininn að hausti  
Sverrir Guðmundsson frá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness sýnir okkur undur alheimsins.

18:50

Gömul íslensk þjóðlög lifna við. 
Smári Ólason hefur stundað rannsóknir á gamalli íslenskri tónlist.

19:20

Geðheilsa íslenskra kvenna á meðgöngu og eftir barnsburð. 
Linda Bára Lýðsdóttir flytur erindi.

19:10

Fljúgandi fiskar!  
Flugfiskurinn Nemó og hákarlinn Karl leika listir sín. Stefán Freyr Stefánsson nemandi við Háskólann í Reykjavík.

19:40

Sprengjugengið! 

19:30

Formula student  
Fimmtán nemendur við Háskóla Íslands segja frá hönnun og smíði kappakstursbíls sem fékk verðlaun frá Airbus á alþjóðlegri hönnunarkeppni sem fram fór á Silverstone kappakstursbrautinni í Bretlandi í sumar.

20:10

Sköpun karaktera í tölvuleikjum  
Hinrik Haraldsson frá CCP.

20:00

Kínversk tónlist – einleikur á sítar 
Atriðið kemur frá Konfúsíusarstofnunni Norðurljós. Tónlistarkonan heitir Xinyuan Zhang.

20:40

Fólk hættir ekki að hreyfa sig af því það eldist, það eldist af því það hættir að hreyfa sig. 
Alfons Ramel kynnir.

20:20

Hvernig virka gervifætur? - Össur 
Sigurður Gunnar Gissurarson.

21:00

Stjörnuhimininn að hausti 
Sverrir Guðmundsson frá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness sýnir okkur undur alheimsins.

20:40

Eldorgelið 
Ari Ólafsson lætur gasloga eldorgelsins dansa og spila í takt við tónlist.

 

 

21:00

Fjársjóður framtíðar
Vísindasjónvarpsþættir Háskóla Íslands sem hefja göngu sína í Sjónvarpinu í haust.Tilgangurinn með þáttunum er að veita fólki skarpa sýn á hið fjölbreytta starf sem vísindamenn skólans sinna og hvernig þeir vinna við rannsóknir við afar ólíkar aðstæður. Þættirnir ná yfir vísindarannsóknir á öllum fræðasviðum skólans.

 

Hér má sjá myndband frá Vísindavökunni frá 2010.

 

Vísindakaffi

Vikan fyrir Vísindavökuna verður einnig tileinkuð vísindunum og almenningi boðið í Vísindakaffi dagana 19.-22. september til að kynnast áhugaverðum viðfangsefnum vísindanna og fá tækifæri til að hitta vísindafólkið sjálft.

Efni Vísindakaffikvöldanna 2011 hér. 


Vísindavaka 2011

 

Föstudaginn 23. september kl. 17:00-22:00 í Háskólabíói

 

Researchers' Night í Evrópu HÉR

 

Upplýsingar um Vísindakaffi


Vísindavaka