Á döfinni

Fyrirtækjastyrkur - Markaður

  • 15.3.2023 - 15:00, Umsóknarfrestur
  • 15.9.2023 - 15:00, Umsóknarfrestur
  • 22.2.2024 - 15:00, Umsóknarfrestur
  • 15.9.2024 - 15:00, Umsóknarfrestur

Hámarksstyrkur

Styrkur getur numið allt að 10 m.kr.

Mótframlag

Að lágmarki 50% af heildarkostnaði við verkefnið.

Hámarkslengd verkefnis

Hámark lengd verkefnis er 1 ár.

Skil á umsókn

Umsóknarfrestur er til kl. 15:00 á lokadegi umsóknarfrests. Umsókn skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís. Skila skal inn að lágmarki eftirfarandi fylgigögnum með rafrænni skráningu umsóknar:

  • Verkefnislýsing
  • Útreikningar 

Skylduskjöl með gefnu sniðmáti fyrir Verkefnalýsingu og Útreikninga er aðgengilegt inni í umsóknarkerfinu. Til að nálgast skylduskjöl þarf að stofna umsókn í umsóknarkerfinu og eru skjölin í stiku hægra megin.

Boðið er upp á hjálparskjal til að gera kostnaðaráætlun, allar tölur úr því skjali þarf að færa undir lið 3.2 og 3.3 í skráningareyðublaði. Hjálparskjalið er ekki hluti af umsókn og á ekki að senda inn með umsókn.   

Þeir sem hafa ekki aðgang að Microsoft office er bent á að hægt er að opna og vinna skjölin í OneDrive .

Matsferli

Umsóknir eru metnar af fagráði Tækniþróunarsjóðs. Fagráðið er þverfaglegt og skipað einstaklingum frá fyrirtækjum, háskólum og stofnunum. Miðað er við að niðurstaða liggi fyrir innan þriggja mánaða frá lokum umsóknarfrests. 

Matsblað sem fagráð sjóðsins notar við mat á umsóknum og stjórn sjóðsins hefur til hliðsjónar við val á umsóknum sem hljóta framgang í sjóðnum:

Skýrsluskil

Skila þarf inn framvinduskýrslu eftir 6 mánuði frá upphafi verkefnisársins þar sem gerð er grein fyrir framgangi verkefnisins. Við lok verkefnisársins skal skila inn lokaskýslu þar sem farið er yfir helstu atriði varðandi verkefnið.  

Sjá sniðmát fyrir skýrslur

Með lokaskýrslum skal skila inn verk- og kostnaðarbókhaldi ásamt nýjasta ársreikningi fyrirtækisins þegar það á við. 

Minniháttar aðstoð (De minimis)

Þessi styrkjaflokkur fellur undir reglur um minniháttar aðstoð. Nánari upplýsingar um minniháttar aðstoð má sjá í reglum Tækniþróunarsjóðs.  


Nánari upplýsingar

  • - Sendið fyrirspurnir til Tækniþróunarsjóðs á netfangið: taeknithrounarsjodur@rannis.is
  • - Símatímar starfsfólks eru mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-12 í síma 515 5800







Þetta vefsvæði byggir á Eplica