Á döfinni

Fyrirtækjastyrkur - Sproti

  • 15.3.2023 - 15:00, Umsóknarfrestur
  • 15.9.2023 - 15:00, Umsóknarfrestur
  • 22.2.2024 - 15:00, Umsóknarfrestur
  • 15.9.2024 - 15:00, Umsóknarfrestur

Hámarksstyrkur

Styrkur getur numið allt að 20 milljónum króna samanlagt á tveimur árum, þó ekki meira en 10 milljónum króna á hvoru ári.

Mótframlag

Ekki er gerð krafa um mótframlag umsækjenda af heildarkostnaði við verkefnið.

Hámarkslengd verkefnis 

Hámarks lengd verkefnis er 2 ár.

Skil á umsókn 

Umsókn í Sprota er skilað í tveimur þrepum. Umsóknarfrestur á við fyrra þrep umsóknar. Aðeins þær umsóknir sem fá A1 eða A2 í einkunn á fyrra þrepi eiga kost á að skila fullbúinni umsókn á seinna þrepi. Umsókn skal skila rafrænt í umsóknarkerfi Rannís. Skila skal inn að lágmarki eftirfarandi fylgigögnum með rafrænni skráningu umsóknar á fyrra þrepi:

  • Verkefnislýsing þrep 1

Skylduskjal með gefnu sniðmáti fyrir Verkefnislýsingu er aðgengilegt inni í umsóknarkerfinu.  Til að nálgast skylduskjal þarf að stofna umsókn í umsóknarkerfinu.

Boðið er upp á hjálparskjal til að gera kostnaðaráætlun, allar tölur úr því skjali þarf að færa undir liði 3.2 og 3.3 í umsóknarkerfi annars þreps. Hjálparskjalið er ekki hluti af umsókn og á ekki að senda inn með umsókn.

Þeir sem hafa ekki aðgang að Microsoft office er bent á að hægt er að opna og vinna skjölin í OneDrive.

Matsferli

Umsóknir eru metnar af fagráði Tækniþróunarsjóðs. Fagráðið er þverfaglegt og skipað einstaklingum frá fyrirtækjum, háskólum og stofnunum. Miðað er við að niðurstaða liggi fyrir innan þriggja mánaða frá lokum umsóknarfrests fyrsta þreps. 

Matsblað sem fagráð sjóðsins notar við mat á umsóknum og stjórn sjóðsins hefur til hliðsjónar við val á umsóknum sem hljóta framgang í sjóðnum.

Skýrsluskil

Skila þarf inn framvinduskýrslu eftir 6 mánuði frá upphafi verkefnisársins þar sem gerð er grein fyrir framgangi verkefnisins. Við lok verkefnisársins skal skila inn áfangaskýrslu þar sem farið er yfir helstu atriði varðandi verkefnið. Ef verkefnisárið er lokaár verkefnisins skal skila inn lokaskýrslu. Áfangaskýrsla er umsókn um framhaldsstuðning sé upphaflega sótt um stuðning til lengri tíma en eins árs.

Með áfanga- og lokaskýrslum skal skila inn verk- og kostnaðarbókhaldi ásamt nýjasta ársreikningi fyrirtækisins þegar það á við.

Minniháttar aðstoð (De minimis)

Þessi styrkjaflokkur fellur undir reglur um minniháttar aðstoð. Nánari upplýsingar um minniháttar aðstoð má sjá í reglum Tækniþróunarsjóðs. 

Leiðbeiningarmyndband

Myndband sem sýnir hvernig umsóknarferli Sprota gengur fyrir sig. Fyrra þrep af tveimur.

https://www.youtube.com/watch?v=3PiUINqcy7I

Nánari upplýsingar

  • - Sendið fyrirspurnir til Tækniþróunarsjóðs á netfangið: taeknithrounarsjodur@rannis.is
  • - Símatímar starfsfólks eru mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10-12 í síma 515 5800





Þetta vefsvæði byggir á Eplica