Á döfinni

Hljóðritasjóður/Tónlistarmiðstöð

  • 15.3.2023 - 15:00, Umsóknarfrestur
  • 15.9.2023 - 15:00, Umsóknarfrestur

Upplýsingar tengdar "gamla" sjóði

Hvert er markmiðið?

Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla íslenska hljóðritagerð í tónlist með fjárhagslegum stuðningi við útgáfu hljóðrita, samkvæmt reglum um Hljóðritasjóð.

Hverjir geta sótt um?

Tónlistarmenn, jafnt einstaklingar sem hljómsveitir, útgáfufyrirtæki og aðrir er koma að hljóðritun tónlistar.

Hvað er styrkt?

Hljóðritasjóður veitir styrki til hljóðritunar nýrrar, frumsamdrar tónlistar sem stuðla á að nýsköpun. Veittir eru styrkir í almenn verkefni og þróunarverkefni. Styrkir úr Hljóðritasjóði skulu veittir til ákveðinna verkefna og ekki lengur en til eins árs í senn. Sjóðurinn veitir ekki styrki til rekstrar og umsýslu samtaka, fyrirtækja og stofnana sem hljóta regluleg rekstrarframlög né til kynningarverkefna og annarra verkefna eða viðburða sem þegar hafa átt sér stað. Sjóðurinn veitir jafnframt ekki styrki til endurútgáfu, varðveislu, útgáfu safnplata, tónleikaupptaka með áður útgefnu efni, framleiðslu hljóðrita og hönnunar umslaga né til greiðslu ferðakostnaðar, verklauna eða tækjakaupa.

Ekki eru veittir styrkir afturvirkt þ.e. til verkefna sem þegar er lokið en "umsókn vegna hljóðrits sem kemur út eftir að sótt hefur verið um styrk en áður en úthlutun hefur farið fram er gild" (sjá verklagsreglur Hljóðritasjóðs). Stjórn metur umsóknir út frá innsendingardegi umsóknar.

Skilyrði úthlutunar

Umsóknum skal skilað í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís. Styrkir úr Hljóðritasjóði eru veittir til ákveðinna verkefna og að jafnaði ekki til verkefna sem taka lengri tíma en eitt ár.

Hafi umsækjandi þegið styrk úr Hljóðritasjóði þarf að liggja fyrir greinargerð umframkvæmd fyrra verkefnis til að ný umsókn af hans hálfu komi til greina það sama á við ef að verk er í vinnslu þá skal umsækjandi skila inn greinargerð um stöðu verksins. 

fyrirspurnir varðandi;

  • verkefni og umsóknir frá og með 2024 skal senda á styrkir(hja)icelandmusic.is

  • eldri verkefni skal senda á hljodritasjodur(hja)rannis.is








Þetta vefsvæði byggir á Eplica