Á döfinni

Kynningarfundur um Eurostars-3

  • 17.2.2023, 9:00 - 10:00, Kynningarfundur

Eurostars er sameiginleg áætlun Evrópusambandsins og EUREKA Network með það markmið að styðja við nýsköpun.

Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum Eurostars verkefna, þ.a.m.:

  • lítil og meðalstór fyrirtæki í rannsóknar- og þróunarstarfsemi 
  • háskólar 
  • opinberar rannsóknastofnanir
  • opinber fyrirtæki

Skráning á fund

Opið er fyrir umsóknir til 13. apríl 2023 kl. 12:00 að íslenskum tíma (kl. 14:00 CEST).

Umsóknum er skilað rafrænt á vef Eurostars.

Dagskrá:

  • Eurostars-3: Innovative SME‘s – Mjöll Waldorff, sérfræðingur á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís og vara stjórnarnefndarfulltrúi Eurostars á Íslandi (NPC) 
  • Hvað þarf að hafa í huga við umsókn, ásamt örkynningu á nýja Innowwide – Helga Waage, tæknistjóri Mobilitus ehf. og fulltrúi í Eurostars International Evaluation Panel 
  • Leit að samstarfsaðila – Katrín Jónsdóttir, sérfræðingur í alþjóðateymi Rannís segir frá þjónustu Enterprise Europe Network við sprotafyrirtæki

Boðið er upp á léttar veitingar.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica