Námskeið í þróun hugmynda að samstarfsverkefnum þann 8. nóvember nk.
Skoski ráðgjafinn Paul Guest heldur þann 8. nóvember nk. námskeið fyrir umsækjendur samstarfsverkefna Erasmus+. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Rannís að Borgartúni 30 frá kl.13:00 - 17:00.
Á námskeiðinu verður áhersla lögð á þróun hugmynda að samstarfsverkefnum. Æskilegt er að þátttakendur séu komnir með hugmynd að verkefni og stefni að því að senda inn umsókn á næsta umsóknarfresti Erasmus+ samstarfsverkefna sem er 29.mars 2017.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Frestur til að skrá þátttöku rennur út 6. nóvember.
Allir umsækjendur fá svarpóst eftir að fresturinn rennur út.