Norrænt verkefni um greiningu á rannsóknastefnu sendir frá sér lokaskýrslu
NIRPA eða The Nordic Network for International Research Policy Analysis, er samtarfsverkefni Norðurlandanna fimm um greiningu á rannsóknastefnu.
Verkefnið hefur nú sent frá sér lokaskýrslu, sem hægt er að nálgast hér að neðan.
Þátttakendur í NIRPA voru eftirfarandi stofnanir á Norðurlöndunum:
- Ráðuneyti vísinda í Danmörku
- Akademia nýsköpunar og menntamála í Finnlandi
- Rannís á Íslandi
- Rannsóknarráðið í Noregi
- Rannsóknarráðið og Rannsóknarráð vinnumarkaðar í Svíþjóð
Um er að ræða tveggja ára samstarfsverkefni um greiningu á stefnumiðum rannsókna í tengslum við alþjóðavæðingu. Markmið verkefnisins voru:
- að auka samstarf norðulanda á greiningu á stefnumiðum rannsókna og þróunar
- að auka skilning á alþjóðlegum áhrifum rannsókna á Norðulöndin almennt.
- að koma á rannsóknarsamstarfi um greiningu á stefnumiðum rannsókna og þróunar
Verkefnið var fjármagnað af NordForsk í tengslum við s.k. NORIA-net áætlun.
Í skýrslunni er að finna umfjöllun um rannsóknastefnu og stjórnun landanna og alþjóðlega þróun á þeim málum. Skoðuð var aukin þörf fyrir skilvirkni almennt og starfsemi háskóla í löndunum í tengslum við rannsóknir og þróun. Gerð var tilraun til að skyggnast til ársins 2025 og skoða þá þróun á rannsóknum og menntun sem hefur þá átt sér stað. Hinar miklu samfélagsáskoranir eru skoðaðar og hvernig megi mæta þeim.