Rannís óskar eftir hugbúnaðarsérfræðingi til starfa
Starfið, sem er fullt starf, felst í forritun umsókna- og gagnagrunnskerfis fyrir Rannís.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um menntun í tölvunarfræði eða annað sambærilegt nám
- Reynsla af hugbúnaðargerð nauðsynleg
- Reynsla af Java forritun
- Þekking á SQL
- Góð samskiptafærni áskilin
- Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu.
Upplýsingar um starfið veitir Magnús Lyngdal Magnússon, aðstoðarforstöðumaður. Sími 515 5816 eðamagnus@rannis.is.
Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2012
Umsækjendur sendi umsókn með ferilskrá ásamt afriti af prófskírteini til Herdísar Þorgrímsdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslu í netfangið herdis@rannis.is. Í efnislínu tölvupósts skal merkja umsóknina: Starfsumsókn hugbúnaðarsérfræðingur.
Við ráðningu í starfið verður tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís. Laun greiðast samkvæmt viðeigandi kjarasamningi við Fjármálaráðuneytið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.