Nýsköpunarþing og afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands 18. apríl
Nýsköpunarþing Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóðs verður haldið miðvikudaginn 18. apríl nk. kl. 8:30 - 10:30 á Grand hótel Reykjavík.
Á þinginu verða flutt erindi undir yfirskriftinni STJÓRNUN NÝSKÖPUNAR.
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2012 verða afhent.
Húsið opnar kl. 8:15 með léttum morgunverði.
Skráning á þingið fer fram hér
DAGSKRÁ:
Ávarp
Oddný G. Harðardóttir, iðnaðarráðherra
Langhlaup nýsköpunar
Svana Helen Björnsdóttir forstjóri Stika og formaður Samtaka iðnaðarins
Alþjóðlegt fyrirtæki úr litlu landi
Davíð Helgason, forstjóri Unity Technologies
Stjórnun í skapandi umhverfi
Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins
Stöðugar umbætur í áliðnaði
Magnús Þór Ásmundsson, forstjóri Alcoa á Íslandi
Tónlistaratriði
Skólakór Kársness
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2012 afhent
Fundarstjóri er Aðalheiður Jónsdóttir, kynningarstjóri Rannís
Allir velkomnir!