Opnir fundur um tillögur að einföldun á vísinda- og nýsköpunarkerfinu
Boðað er til tveggja opinna umræðufunda um tillögur að einföldun vísinda- og nýsköpunarkerfsins. Fyrri fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu, fimmtudaginn 26. apríl 2012, kl. 15-17.
Þann 1. apríl 2011 ályktaði Vísinda- og tækniráð að fela starfsnefndum ráðsins að móta tillögur um einföldun á vísinda- og nýsköpunarkerfinu í samræmi við stefnu ráðsins 2010-2012, Byggt á styrkum stoðum og Ísland 2020. Starfsnefndirnar töldu að tillögurnar yrðu að hafa viðspyrnu í heildstæðri lýsingu á kerfinu öllu og í grundvallarendurskoðun á fjármögnun þess. Starfshópur innan ráðsins vann tillögur og drög að skýrslu í vetur í nánu samstarfi við nefndamenn, starfsmenn Rannís og ritara ráðsins, en ritstjóri skýrslunnar er Þorsteinn Gunnarsson.
Skýrslan var kynnt á fundi Vísinda - og tækniráðs 23. mars sl. og í kjölfarið var hún sett í kynningu á vef ráðsins og Rannís og óskað eftir athugasemdum til 20. apríl, sjá: http://vt.is/visinda&taeknirad/einfoldun-a-visinda--og-nyskopunarkerfinu/
Efnt er til tveggja opinna funda um skýrsludrögin, fimmtudagana 26. apríl og 3. maí nk.
Tillögur um einföldun stofnana og háskóla
Fimmtudaginn 26. apríl 2012 kl. 15-17 í Norræna húsinu. Kaffiveitingar frá kl. 14:30
Stutt inngangserindi:
Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs
Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofu Íslands
Sigríður Ólafsdóttir, SÓL ráðgjöf
Jón Hilmar Jónsson, rannsóknaprófessor Stofnun Árna Magnússonar
Sólveig Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar
Áslaug Helgadóttir, prófessor Landbúnaðarháskóla Íslands
Umræður
Fundarstjóri: Pétur Reimarsson, varaformaður tækninefndar Vísinda- og tækniráðs