Kínverski ísbrjóturinn Snædrekinn á leið til Íslands
Fimmti rannsóknarleiðangur Kína á norðurslóðir (CHINARE 5) er nú hálfnaður með komu ísbrjótsins Snædrekans (Xuě Lóng) til Íslands, en Snædrekinn verður hér á landi í boði íslenskra stjórnvalda dagana 16.-20. ágúst.
Heimsókn Snædrekans til Íslands hefur verið skipulögð af Rannsóknamiðstöð Íslands (RANNÍS) í víðtæku samráði við fjölmarga aðila hér á landi og má þar nefna m.a. embætti forseta Íslands, utanríkisráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Háskóla Íslands, Raunvísindastofnun, Háskólann á Akureyri, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Akureyrarbæ, Arctic Portal og Samvinnunefnd um málefni norðurslóða sem heyrir undir umhverfisráðuneytið.
Vísindasamstarf Íslands og Kína á sviði norðurslóðarannsókna
Með komu Snædrekans verður vísindalegt norðurslóðasamstarf ríkjanna styrkt enn frekar, bæði í formi rannsókna á jarðfræði hafsbotnsins og efnafræði sjávar og andrúmslofts í íslenskri landhelgi og tillagna um aukið samstarf á sviði félagsvísinda og sameiginlegri norðurljósarannsóknarstöð. Tveir íslenskir vísindamenn, Egill Þór Níelsson gistifræðimaður við Heimskautastofnun Kína og Ingibjörg Jónsdóttir dósent við Háskóla Íslands, taka þátt í fimmta rannsóknarleiðangri Kína á norðurslóðir um borð í Snædrekanum.
Snædrekinn verður opin fyrir almenning í vikunni, bæði í Reykjavík og á Akureyri, auk þess sem tvö málþing verða haldin um málefni norðurslóða og rannsóknarsamstarf ríkjanna.
Sögulegur leiðangur Snædrekans um Norður-Íshaf
Á leið Snædrekans til Íslands hafa verið framkvæmdar rannsóknir bæði Kyrrahafs- og Atlantshafsmegin við Norður-Íshafið. Fyrstu rannsóknirnar fóru fram í Bering- og Chukchihafi, en engar rannsóknir voru framkvæmdar við Rússlandsstrendur. Við komuna í Noregshaf hófust rannsóknir á ný og þann 4. ágúst var fimmtán og hálfs tonna athugunardufl, sem er fimmtán metrar á hæð og sex metrar á breidd, sett á flot til gagnvirkra sjávar- og verðurrannsókna. Rannsóknirnar í Noregssjó eru þær fyrstu sem Snædrekinn framkvæmir Atlantshafsmegin við Norður-Íshaf.
Dagana fyrir komuna til Íslands framkvæmir Snædrekinn rannsóknir við Íslandsstrendur í samvinnu við vísindamenn við Háskóla Íslands. Viðfangsefni rannsóknanna eru: sjávarjarðfræðilegur samanburður á loftslagbreytingum í Kína og í Norður-Atlantshafi; samanburður á umhverfisskilyrðum sjávar Atlants- og Kyrrahafsmegin við Norður-Íshaf, og jarðefnafræðilegar rannsóknir. Niðurstöður fimmta rannsóknarleiðangurs Kína á norðurslóðir verða aðgengilegar fyrir hið alþjóðlega vísindasamfélag í gagnamiðstöð kínverska ríkisins um málefni Norður- og Suðurheimsskautsins, sem Heimskautastofnun Kína heldur utan um. Snædrekinn varð með leiðangri sínum til Íslands fyrsta kínverska skipið sem farið hefur í gegnum norðausturleiðina um Norður-Íshaf og heimsóknin í boði íslenskra stjórnvalda markar jafnframt fyrstu opinberu komu Snædrekans til norðurslóðaríkis.
Á meðan á Íslandsdvöl Snædrekans stendur mun ísbrjóturinn heimsækja Reykjavík 16.-18. ágúst og Akureyri 19.-20. ágúst. Dagskrá heimsóknarinnar verður fjölþætt og inniheldur meðal annars tvö málþing um norðurslóðarannsóknir ríkjanna og opna daga Snædrekans. Íslendingum gefst með því bæði kostur á að fræðast um norðurslóðasamstarf þjóðanna og fara um borð í Snædrekann.
Dagskrá Snædrekans á Íslandi
Fimmtudaginn 16. ágúst kl. 16:00 verður komuathöfn Snædrekans við Skarfabakka í Sundahöfn og frétta- og blaðamannafundur haldinn um borð í skipinu.
Háskóli Íslands og RANNÍS standa fyrir opnu málþingi um loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á Norður-Íshaf föstudaginn 17. ágúst kl. 8:30-13:00 í Háskóla Íslands. Málþingið verður sett af fulltrúa utanríkisráðherra og sendiherra Kína á Íslandi. Fyrirlesarar verða vísindamenn frá Kína og Íslandi sem fjalla um loftslagsbreytingar á norðurslóðum og almennt um norðurslóðastarf þjóðanna tveggja. Að loknum kynningum og umræðum, verður skrifað undir viljayfirlýsingar um frekara vísindasamstarf á norðurslóðum og forseti Íslands flytur lokaávarp málþingsins.
Að málþinginu loknu munu forseti Íslands og forsetafrú, ásamt fylgdarliði heimsækja Snædrekann og ræða áframhaldandi rannsóknarsamstarf þjóðanna tveggja um málefni norðurslóða. Seinna um daginn mun forseti Íslands bjóða þátttakendum í fimmta rannsóknarleiðangri Kína um norðurslóðir heim að Bessastöðum.
Snædrekinn verður opinn til sýnis fyrir almenning í Reykjavík laugardaginn 18. ágúst frá klukkan 11:00-16:00, við Skarfabakka í Sundahöfn.
Á Akureyri munu Akureyrarbær, Háskólinn á Akureyri RANNÍS Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Arctic Portal standa fyrir málþingi um málefni norðurslóða og norðurslóðasamstarf ríkjanna. Málþingið, sem haldið verður í Hofi mánudaginn 20. ágúst kl. 8:30-12:00, verður sett af forseta bæjarstjórnar á Akureyri og sendiherra Kína á Íslandi. Fyrirlesarar verða vísindamenn frá Kína og Íslandi sem munu fjalla um norðurslóðarannsóknir landanna, auk þess að taka sérstaklega fyrir þá samstarfsmöguleika sem felast í norðurljósarannsóknum á Íslandi og frekara samstarfi á á sviði félagsvísinda. Lokaávarp málþingsins flytur rektor Háskólans á Akureyri.
Snædrekinn verður opinn til sýnis fyrir almenning á Akureyri mánudaginn 20. ágúst kl. 12:30-16:00 við Oddeyrarbryggju. Forseti bæjarstjórnar mun setja opinn dag Snædrekans ásamt sendiherra Kína á Íslandi. Sama dag kl. 13:00-13:30 verður fréttamannafundur um borð í Snædrekanum, en ísbrjóturinn heldur svo af stað til Kína í gegnum Norður-Íshafið seinna um kvöldið.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gunnarsson hjá Rannís
Frekari upplýsingar um rannsóknaleiðangur Snædrekans má finna á www.chinare5.com