Undirbúningsstyrkir Þróunarsjóðs EFTA
Frá og með 1. október 2012 verður mögulegt að sækja um undirbúningsstyrki sem ætlað er að auðvelda leit að samstarfsaðilum og gerð umsókna. Gert er ráð fyrir að afgreiða umsóknir um leið og þær berast. Nánari upplýsingar veitir Viðar Helgason hjá Rannís og einnig má finna upplýsingar á vefslóð EEA styrkja í Póllandi.