Fjármögnun rannsókna rædd á haustþingi Rannís 28. nóvember
Haustþing Rannís verður haldið miðvikudaginn 28. nóvember 2012 kl. 8.30-10.30 á Grand hótel Reykjavík.
Yfirskrift þingsins að þessu sinni er: Fjármögnun rannsókna - hvert stefnir?
Húsið opnar kl. 8.00 með morgunverði fyrir gesti.
Skráning á rannis@rannis.is.
Á þinginu verður fjallað um fjármögnun háskóla með áherslu á fjármögnun rannsókna. Vaxandi fjöldi nemenda í framhaldsnámi krefst þess að hugað sé sérstaklega að fjármögnun og gæðum rannsóknartengds náms með öflugu samstarfi við rannsóknarstofnanir og atvinnulíf.
Fjallað verður um grunnfjármögnun háskólanna og þær leiðir sem háskólar hafa til að afla fjár til kennslu og rannsókna, t.d. með öflun sértekna úr innlendum og erlendum sjóðum. Rætt verður um hvert við viljum stefna í grunnfjármögnun háskóla á Íslandi og þau tækifæri sem felast í nánara samstarfi háskóla við rannsóknarstofnanir og fyrirtæki.
Dagskrá:
8.30 | Setning haustþings Rannís |
8.40 | Grunnfjármögnun háskólastigsins Magnús L. Magnússon, sérfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu. |
9.00 | Hvernig verða háskólar framtíðar fjármagnaðir? |
9.15 | Rannsóknatengt framhaldsnám: Markmið og fjármögnun |
9.30 | Háskólar, rannsóknastofnanir og atvinnulíf - markaðsdrifin virðiskeðja? |
9.45 | Samstarf við fyrirtæki |
10.00 | Rannsóknir í þágu þjóðar - sjónarhorn atvinnulífs á rannsóknir |
10.15 | Umræður Fundarstjóri: Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís |