China-Nordic Arctic samstarf og ráðstefna
Fyrsta China-Nordic Arctic Cooperation Symposium verður haldið við Heimskautastofnunina í Kína í Shanghai í samstarfi við Rannís, 4.-7. júní 2013. Ráðstefnan er undanfari að stofnun China-Nordic Arctic Research Center sem fyrirhugað er að koma á fót í Shanghai á næstunni.
Tillögur að erindum skal skilað fyrir 15. mars 2013.
Varðandi ferðakostnað skal tekið fram að fyrirlesurum verður séð fyrir fæði og ferðum innan Kína á meðan ráðstefnunni stendur. Annan kostnað t.d., flugfargjöld til og frá Kína og gistingu greiða þátttakendur sjálfir en leitað verður leiða til að styrkja hluta af ferðakostnaði íslenskra fyrirlesara.
Þorsteinn Gunnarsson hjá Rannís veitir nánari upplýsingar.