Nýstárlegt hljóðfæri hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2013
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2013 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 19. febrúar. Verkefnið sem hlaut verðlaunin að þessu sinni heitir OHM - hönnun, þróun og smíði nýs hljóðfæris og var það unnið af Úlfi Hanssyni, nemanda við Listaháskóla Íslands.Leiðbeinandi hans í verkefninu var Hans Jóhannsson hjá Fiðlusmíðaverkstæði Hans Jóhannssonar.
Hljóðfærið er 26 strengja rafstrokin harpa, með snertitökkum, en er að auki sjálfspilandi með sérsmíðuðu tölvuforriti sem var hluti hönnunarvinnunnar. Við upphaf verkefnisins var lagt upp með að hanna og þróa nýja tegund hljóðfæris sem ætti erindi inn í heim raftónlistarinnar, en byggi engu að síður yfir akústískum eiginleikum hefðbundinna eldri hljóðfæra. Raftónlist án hátalara hefur ekki náð fótfestu í heimi hljóðgervla og tölvuforrita, en með hjálp smárra tölvukubba eða örflaga hefur samtalið milli hinna stafrænu og hliðrænu heima eflst til muna. Með hljóðfærinu er hefðbundnu samspili snertingar, viðbragðs og tóns á strengjahljóðfæri umturnað. Strengirnir, sem eru innan í hljóðfærinu, eru knúnir áfram, eða "stroknir", með snertitökkum úr kopar á viðaryfirborði. Hljóðið kemur innan úr hljóðfærinu, en þrátt fyrir að vera rafknúið er hljóðið einungis byggt á eigindum strengjanna sem slíkra. Náttúruleg endurómun 26 opinna strengja skapar því þann tónblæ sem er einkennandi fyrir hljóðfærið.
Hér má heyra í slaghörpu Úlfs: http://ulfurhansson.com/OHM-ELECTROMAGNETIC-HARP
Verðlaunagripir í ár
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt 1996 og eru því nú veitt í átjánda sinn. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhendir verðlaunin. Samtök atvinnulífsins gefa verðlaunin í ár, en verðlaunagripurinn er listaverkið Blessun - hönd listamannsins eftir Bjargeyju Ólafsdóttur en hún lærði við MHÍ og nam síðan list víðsvegar um Evrópu. Allir sem tilnefndir eru og hafa hlotið þá viðurkenningu að verkefnið þeirra hefur verið valið sem öndvegisverkefni sjóðsins fengu teikningar eftir listakonuna Sunnu Ben, sem er sjálfstætt starfandi listakona í Reykjavík. Einnig fá allir tilnefndir viðurkenningarskjal undirritað af forsetanum.
Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður árið 1992 til að útvega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknaverkefni. Styrkjum er úthlutað til kennara á háskólastigi, fyrirtækja, rannsóknastofnana eða einstaklinga sem hafa sérþekkingu á ákveðnu sviði, til þess að ráða háskólanema til sumarstarfa. Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun, jafnt fyrir atvinnulíf sem og á viðkomandi fræðasviði.
Hér má sjá upplýsingar um hin öndvegisverkefnin sem tilnefnd voru.