Umsóknarfrestur í Innviðasjóð er til 22. apríl

11.3.2013

Innviðasjóður lýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum, en umsóknafrestur er til 22. apríl 2013.

Opnað verður fyrir rafræna skráningu umsókna innan skamms. Umsækjendur eru beðnir um að kynna sér reglur Innviðasjóðs áður en hafist er handa við gerð umsókna.

Hlutverk Innviðasjóðs er að byggja upp rannsóknarinnviði á Íslandi. Innviðasjóður veitir styrki til kaupa á tækjum, gagnagrunnum og hugbúnaði og öðrum þeim búnaði sem telst mikilvægur fyrir framfarir í rannsóknum.

Sjá upplýsingar um Innviðasjóð hér.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica