Meniga hlýtur Vaxtarsprotann 2013
Fyrirtækið Meniga ehf. hlaut Vaxtarsprotann 2013 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis á undanförnu ári. Fyrirtækið nær tífaldaði sölutekjur sínar milli áranna 2011 og 2012. Fyrirtækin Controlant, Nox Medical og Iceconsult fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti Viggó Ásgeirssyni, Ásgeiri Ásgeirssyni og starfsmönnum Meniga Vaxtarsprotann 2013 að viðstöddum fulltrúum sprotafyrirtækja og stuðningsaðilum atvinnulífsins í Grasagarðinum í Laugardal við hátíðlega athöfn þann 3. maí.
Vaxtarsprotinn er viðurkenning sem veitt er á vegum Samtaka iðnaðarins, Rannís og Háskólans í Reykjavík. Tilgangurinn er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.
Sjá nánar um Vaxtarsprotann og fyrirtækin sem fengu viðurkenningu hér.