Árangursstjórnunarsamningur undirritaður
Forstöðumaður Rannís, Hallgrímur Jónasson, og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra hafa undirritað árangursstjórnunarsamning milli mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Rannsóknamiðstöðvar Íslands, Rannís.
Samningurinn kveður á um gagnkvæmar skyldur ráðuneytisins og Rannís við útfærslu á hlutverki stofnunarinnar, en tilgangurinn er að festa í sessi ákveðið samskiptaferli og upplýsingamiðlun ásamt því að leggja grunn að áætlanagerð og mati á árangri í starfsemi Rannís.
Hægt er að sjá myndir frá undirrituninni og kynna sér efni samningsins hér.