Umsóknarfrestur Starfslaunasjóðs sjálfstætt starfandi fræðimanna er til 6. júní
Starfslaunasjóður sjálfstætt starfandi fræðimanna auglýsir eftir umsóknum um starfslaun úr sjóðnum sem veitt verða frá 1. ágúst 2013.
Umsóknarfrestur er til 6. júní, kl. 17:00
Hlutverk sjóðsins er að styðja við starfsemi fræðimanna sem starfa sjálfstætt í sinni fræðigrein. Rétt til að sækja um laun úr sjóðnum hafa höfundar fræðirita, fræðigreina, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku.