Auglýst eftir umsóknum í Markáætlun um rafræna innviði og alþjóðlegt samstarf
Meginmarkmið Markáætlunar á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar 2013-2015 er að auka alþjóðlega samkeppnishæfni íslensks vísinda- og nýsköpunarsamfélags ásamt því að treysta stoðir íslenskrar menningar og atvinnulífs.
Umsóknarfrestur er til 22. ágúst 2013
Auglýst er eftir umsóknum í tveimur flokkum:
- Flokkur A: nýliðun meðal vísindamanna/fyrirtækja í alþjóðlegt samstarf, sókn í alþjóðlega samkeppnissjóði og alþjóðlega markaði.
- Flokkur B: rafrænir innviðir og hagnýting upplýsingatækni.
Styrkir eru veittir í allt að 36 mánuði. Styrkupphæð getur að hámarki verið 120 milljónir króna fyrir 36 mánaða verkefni, 80 milljónir króna fyrir 24 mánaða verkefni og 40 milljónir króna fyrir 12 mánaða verkefni.
Markáætlun heyrir undir mennta- og menningarmálaráðherra. Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003 með áorðnum breytingum.
Umsóknir eru rafrænar og eru umsækjendur beðnir um að kynna sér rækilega reglur sjóðsins áður en hafist er handa við gerð umsókna.