Auglýst eftir umsóknum um styrki úr Vinnustaðanámssjóði

28.6.2013

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Vinnustaðanámssjóði. Umsóknarfrestur er til 16. ágúst 2013. 

Vinnustaðanámssjóður veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla. Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi.

Margrét Jóhannsdóttir hjá Rannís veitir nánari upplýsingar.

Meira um Vinnustaðanámssjóð hér.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica