Íþróttasjóður - umsóknarfrestur til 1. október

27.8.2013

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008.

Umsóknarfrestur er til 1. október 2013

Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:

  • Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta  aðstöðu til íþróttaiðkana
  • Útbreiðslu- og fræðsluverkefna
  • Íþróttarannsókna
  • Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga 

Hingað til hefur mennta- og menningarmálaráðuneytið haft umsjón með sjóðnum en frá og með hausti 2013 færist umsýsla hans til Rannís.

Nánari upplýsingar um íþróttasjóð, leiðbeiningar, og rafræn umsóknareyðublöð í þessum tengli.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica