Viðurkenning fyrir vísindamiðlun - tilnefningar óskast

16.9.2013

Rannís óskar eftir tilnefningum til vísindamiðlunarverðlauna Vísindavöku 2013.

Viðurkenning fyrir vísindamiðlun er veitt einstaklingi, stofnun, fyrirtæki, samtökum eða verkefni, sem þykir hafa staðið ötullega að þvi að miðla vísindum og fræðum til almennings á áhugaverðan hátt. Skal vísindamiðlunin hafa stuðlað að bættum skilningi almennings, barna, ungmenna og fullorðinna, á vísindum og fræðum og á mikilvægi þeirra fyrir íslenskt samfélag. Einnig skal vísindamiðlunin hafa vakið athygli á starfi vísindamanna og á mikilvægi rannsókna og nýsköpunar í íslensku samfélagi.

Tilnefningar skulu sendar til Aðalheiðar Jónsdóttur, kynningarstjóra Rannís í netfangið adalheidur.jonsdottir@rannis.is fyrir 23. september nk. Tilnefningu skal fylgja stuttur rökstuðningur og/eða dæmi um vel heppnaða vísindamiðlun yfir síðastliðið/n ár.

Hér má finna upplýsingar um Háskólalestina sem hlaut viðurkenninguna á Vísindavöku 2012 og Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness, sem hlaut viðurkenninguna á Vísindavöku 2011.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica