Málþing um opinn aðgang 25. október
Málþing um opinn aðgang og aðgang að rannsóknaniðurstöðum verður haldið föstudaginn 25. október 2013 í Háskólanum í Reykjavík
Opinn aðgangur á Íslandi, í samstarfi við Rannís, Háskólann í Reykjavík og fleiri aðila, stendur fyrir málþingi um opinn aðgang að rannsóknaniðurstöðum. Viðburðurinn er hluti af alþjóðlegu Open Access vikunni 21.-27. október 2013.
Markmiðið með málþinginu er að fræða fræðasamfélagið og almenning á Íslandi um opinn aðgang og að hvetja til umræðu um málefnið.
Boðið verður upp á léttan hádegisverð og kaffiveitingar.
Dagskrá
10:30-11:15 Skráning og kaffi
11:15-11:45 Staðan á Íslandi. (Fyrirlesari frá OA á Íslandi)
11:45-12:25 Aðalfyrirlesari: Mikael Elbæk frá DTU, Danmörku
12:25-13:00 Matarhlé
13:00-14:30 Þrjár vinnustofur, öllum opnar:
- Opinn aðgangur og ritstjórn/umsjón fræðirita. Stjórnendur: Ian Watson og Guðmundur Þórisson
- Opinn aðgangur fyrir fræðihöfunda. Stjórnendur: Sólveig Þorsteinsdóttir og Guðlaug Þ. Kristjánsdóttir
- Opinn aðgangur fyrir stjórnendur og annað fagfólk. Stjórnandi: Mikael Elbæk
14:30-14:45 Kaffi
14:45-15:30 Örerindi. 8-10 stutt erindi. Fyrirlesarar og titlar erinda kynntar á heimasíðu.
15:30-16:15 Framgangur opins aðgangs frá sjónarhóli stofnunar:
- Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík
- Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir, landsbókavörður, Landsbókasafni
16:15-16:30 Samantekt og málþingi slitið
Aðgangur er ókeypis og opinn öllum.
Áhugasamir geta skráð sig til þátttöku á vef OA Ísland þar sem finna má dagskrá og frekari upplýsingar: http://opinnadgangur.is/vidburdir/oa-island-malthing-2013/