Allir velkomnir á Vísindavöku og vísindakaffi!

22.9.2013

Vísindavaka Rannís verður haldin föstudaginn 27. september kl. 17-22 í Háskólabíói. Vísindavaka verður sett kl. 17 í stóra salnum og veitt verður viðurkenning Rannís fyrir vísindamiðlun. Allir eru velkomnir á opnun vökunnar!

Á Vísindavöku gefst kostur á að hitta okkar fremsta vísinda- og fræðifólk og kynnast viðfangsefnum þeirra frá fyrstu hendi. Í ár verður sýningarsvæðið fjölbreytt sem endranær, en einnig verður boðið upp á lifandi vísindamiðlun á sviði, allt frá örfyrirlestrum til Sprengjugengisins alræmda. Gestir Vísindavöku fá að skoða og prófa tæki og tól sem notuð eru við rannsóknir, skoða ýmsar afurðir og spjalla við vísindafólkið sjálft um hvernig er að starfa að vísindum, rannsóknum og nýsköpun. Allir finna eitthvað við sitt hæfi á Vísindavöku, og er sérstök áhersla lögð á að ná til ungs fólks - framtíðarfræðafólks okkar! Nánar á www.visindavaka.is

Í aðdraganda Vísindavöku er hellt upp á hið sívinsæla Vísindakaffi á Súfistanum, Máli og menningu Laugavegi, frá mánudegi til fimmtudags, kl. 20-21.30 hvert kvöld. Að auki verður boðið upp á Vísindakaffi í Sandgerði fimmtudaginn 26. september og á Húsavík föstudaginn 27. september. Vindurinn, atgervi ungs fólks, krabbameinsrannsóknir, sjávardýr, ferðaþjónusta og samfélög norðurslóða, eru meðal efnis í Vísindakaffi Rannís í ár. Nánar á www.visindavaka.is

Allir velkomnir á Vísindavöku 2013!

Tengill á vefsíðu Vísindavöku









Þetta vefsvæði byggir á Eplica