Sprengjugengið hlaut viðurkenningu Rannís fyrir vísindamiðlun

28.9.2013

Sprengjugengi Háskóla Íslands hlaut viðurkenningu Rannís 2013 fyrir vísindamiðlun. Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra afhenti  Sprengjugenginu viðurkenninguna við opnun Vísindavöku 2013 í Háskólabíói föstudaginn 27. september.

Sprengjugengið samanstendur af hópi nemenda í efnafræði, efnaverkfræði og lífefnafræði við Háskóla Íslands sem hafa stundað  kynningar og sýningar á undraheimi efnafræðinnar fyrir almenning síðan 2007. 

Kynningar og sýningar hópsins eru í senn fræðandi og skemmtilegar og til þess fallnar að örva áhuga ungmenna og almennings á efnafræði og skyldum raungreinum.  Starfsemi hópsins hefur færst jafnt og þétt í aukana síðan 2007 og hefur frá upphafi verið í miklu og góðu samstarfi við skipuleggjendur Vísindavöku.

Sprengjugengið er ekki bara skemmtilegt, heldur leggur það einnig mikla áherslu á að flétta inn skýringar á hinum ýmsu eðlisfræðilegum og efnafræðilegum eiginleikum sýningaratriða sem og að tengja fræðin við hversdagsleg fyrirbæri.   Hópurinn hefur haldið sýningar víða um land í skólum, félagsmiðstöðum, komið fram í fjölmiðlum og ýmsum samkomum.  Þá hefur hann  lagt sig fram við að vinna með börnum á grunnskólastigi í Háskóla unga fólksins og víðar. 

Það er álit dómnefndar Rannís að Sprengjugengið,  undir forystu Katrínar Lilju Sigurðardóttur, framhaldsnema í efnafræði, sé einstaklega vel að viðurkenningu fyrir vísindamiðlun komið.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica