Norðurslóðadagurinn 2013

2.11.2013

Vekjum athygli á áhugaverðri ráðstefnu:

Norðurslóðadagurinn 2013

Fimmtudaginn 14. nóvember 2013, 09:00 - 17:30, í húsnæði Hafrannsóknastofnunar, Sjávarútvegshúsinu, Skúlagötu 4, ráðstefnusal 1. hæð.

Dagskrá er að finna hér.


Hvernig eflum við þátttöku íslensks vísindasamfélags í alþjóðlegri samvinnu og stefnumótun um norðurslóðir?

Á Norðurslóðadegi 2013 verður rætt um (1) hvernig íslenskt vísindasamfélag er í stakk búið til að mæta þeim áskorunum sem hraðfara breytingar á norðurslóðum hafa í för með sér og (2) hvernig vísindasamfélagið er undirbúið til að taka þátt í vaxandi alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði. Fjallað verður á þverfaglegan hátt um framlag og verkefni íslenskra aðila sem koma að alþjóðlegri samvinnu í vöktun, rannsóknum og menntun á norðurslóðum. Kynnt verða viðfangsefni sem tengjast háskólamenntun, mannauði og stoðkerfi rannsókna, þ.m.t. umgjörð stofnana til samvinnu. Jafnframt verður fjallað um valin dæmi um samstarf fyrirtækja, háskóla og opinberra stofnana.

Samhliða fyrirlestrum og pallborðsumræðu kynna stofnanir og félög er tengjast viðfangs- og málefnum norðurslóða starfsemi sína og rannsóknir með veggspjöldum og öðru kynningarefni í anddyri Sjávarútvegshússins. Dagskráin hefst kl. 09:00 með ávarpi ráðuneytisstjóra umhverfis- og auðlindaráðuneytis og lýkur með sérstöku öndvegiserindi um norðurslóðarannsóknir.

Skipuleggjandi Norðurslóðadagsins eru Samvinnunefnd umhverfisráðuneytisins um málefni norðurslóða; framkvæmd er í höndum Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, Rannís, Hafrannsóknastofnunar og Norðurslóðanets Íslands. Dagskrá er að finna hér.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica