Viltu vaxa? Málstofur í tilefni af SME week 2013

24.11.2013

Málstofur í tilefni af Evrópsku fyrirtækjavikunni 2013

Dagsetning: fimmtudagur, 28. nóvember 2013

Klukkan: 9:00 - 12:00

Staður: Grand hótel Reykjavík

Undanfarin fjögur ár hefur ein vika á ári verið helguð nýsköpunarfyrirtækjum og frumkvöðlum í Evrópu undir yfirskriftinni SME Week eða evrópska fyrirtækjavikan. Hópur aðila úr stoðkerfinu hefur á þessum árum blásið í lúðra og haldið sameiginlegan viðburð fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi.  Þessir aðilar eru Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Íslandsstofa, Rannís, Nýsköpunarsjóður og Samtök iðnaðarins.

Í ár bjóðum við á fjórar málstofur sem sniðnar eru að þörfum markaðarins og varða útflutning, tengslamyndun, fjármögnun, rannsóknir og nýsköpun. Reynsluboltar úr atvinnulífinu segja sína sögu og deila með okkur gullnum ráðum og reynslu.  

Dagskrá hér

Skráning fer fram hér









Þetta vefsvæði byggir á Eplica