Þróunarsjóður námsgagna: næsti umsóknarfrestur er 15. janúar
Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Þróunarsjóði námsgagna. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2014.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla. Markmiðið er að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla. Efnið skal henta til rafrænnar útgáfu sé þess nokkur kostur.
Fyrir árið 2014 nýtur forgangs efni sem styður við skilgreinda lykilhæfni í aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla og/eða skilgreind námssvið í aðalnámskrá leikskóla.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi.
Allar nánari upplýsingar og aðgang að rafrænu umsóknarformi hér.