Áhrifagen á framvindu brjóstakrabbameins á litningi 8p12-p11 - verkefnislok í Rannsóknasjóði
Markmið verkefnisins Áhrifagen á framvindu brjóstakrabbameins á litningi 8p12-p11 var að finna markgen litningasvæðisins til að kanna hvort genaafurðir þess tengdust klínískum eða meinafræðilegum eiginleikum æxlanna.
Heiti verkefnis: Áhrifagen á framvindu brjóstakrabbameins á litningi 8p12-p11
Verkefnisstjóri: Inga Reynisdóttir
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2009-2011
Fjárhæð styrks: 17,928 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: 090438
Tilgangurinn var að kanna hvort hægt væri að nota magn genaafurðanna til að spá fyrir um horfur brjóstakrabbameinssjúklinga. Litningasvæðið á 8p12-p11 er eitt af algengari litningasvæðum sem er magnað í brjóstaæxlum. Mögnunarmynstur þess er flókið samspil lítilla undirsvæða og eru tvö megin svæði, A1 og A2. Við skilgreindum ZNF703 markgen mögnunar á undirsvæði A1 í estrógen (ER) jákvæðum luminal B brjóstaæxlum. Sjúklingar með slík æxli sem tjáðu hátt magn ZNF703 lifðu skemur en þeir sem báru æxli sem tjáðu lágt magn gensins. Það sem kom á óvart var að hjá tjáning gensins, óháð mögnun þess, leiddi til verri horfa. Ávinningur verkefnisins er sá að ZNF703 gæti haft forspárgildi fyrir sjúklinga sem eru með illvígari gerð ER jákvæðra brjóstaæxla en þó á eftir að staðfesta niðurstöðurnar í stærra þýði. Sex gen koma til greina sem markgen mögnunar á A2 undirsvæðinu. Annars vegar leggja niðurstöður verkefnisins grunn að því að skilgreina markgen A2 litningasvæðisins og hins vegar að því að kanna samspil milli ZNF703 við markgen A2 litningasvæðisins og við gen á öðrum litningasvæðum sem eru oft mögnuð ásamt 8p12-p11.
Handrit og önnur gögn:
Reynisdottir, I., Arason, A., Einarsdottir, B.O., Gunnarsson, H., Staaf, J., Vallon-Christersson, J., Jonsson, G., Agnarsson, B.A., Olafsdottir, K., Fagerholm, H., Einarsdottir, T., Johannesdottir, G., Johannsson, O.Th., Nevanlinna, H., Borg, A., Barkardottir, R.B. High expression of ZNF703, independent of amplification, indicates worse prognosis in patients with luminal B breast cancer. Cancer Medicine 2013, athugasemdum frá ritrýnum hefur verið svarað og verður handritið sent inn á ný að loknum yfirlestri meðhöfunda.
Meistaraverkefni kynnt og varin við Læknadeild Háskóla Íslands:
2010 - Berglind Ósk Einarsdóttir: Genomic and expression analysis of genes at 8p12-p11.
2012 - Edda Olgudóttir: Potential oncogenes within the 8p12-p11 amplicon.
Verkefnið hefur verið kynnt á ráðstefnu bandarísku krabbameinssamtakanna (American Association for Cancer Research) og einnig á ráðstefnum innanlands.