Jarðefnafræðileg hegðun króms í vatni - verkefnislok í Rannsóknasjóði
Króm finnst í náttúrulegu vatni og getur verið skaðlegt heilsu manna. Verkefnið "Jarðefnafræðileg hegðun króms í vatni" fól í sér að skilgreina styrk króms í vatni á Íslandi. Sýnum af köldu og heitu vatni var safnað og þau efnagreind með tilliti til styrks króms og efnasambanda króms. Niðurstöðurnar sýna að stykur króms í vatni er mjög háður pH gildi vatnis. Í súru jarðhitavatni er styrkurinn oft hár eða allt að 660 µg L-1 en í hlutlausu og basísku vatni er styrkurinn almennt lægri og á bilinu <0.01-5 µg L-1.
Heiti verkefnis: Jarðefnafræðileg hegðun króms í vatni
Verkefnisstjóri: Andri Stefánsson, Jarðvísindastofnun Háskólans, áður Ingvi Gunnarsson, sama stað
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2007-2009
Fjárhæð styrks: 8,315 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: 070266
Króm, og sérstaklega sexgild króm (CrVI) er mjög krabbameinsvaldandi. Leyfilegur hámarksstyrkur í neysluvatni er 50 µg L-1 og mælist allt vatn á Íslandi fyrir neðan þessi viðmiðunarmörk. Á síðustu árum hafa yfirvöld í Bandaríkjunum stefnt að því að lækka þessi viðmiðunargildi í <0.2 µg L-1 vegna krabbameinshættu. Mikið af íslensku og basískur neysluvatni (pH >8) eru yfir þessum mörkum af náttúrlegum ástæðum.