Starfshættir í grunnskólum - verkefnislok í Rannsóknasjóði
Rannsóknin Starfshættir í grunnskólum gefur umfangsmikið yfirlit yfir skólastarf í íslenskum grunnskólum nú við upphaf 21. aldar. Niðurstöður benda m.a. til þess að umtalsverður munur sé á náms- og kennsluháttum eftir skólum og aldursstigum og skólahúsnæði sé að verða sveigjanlegra og opnara en algengast var alla 20. öldina. Fjöldi þróunarverkefna hafa verið unnin og eru í gangi í íslenskum skólum en skort hefur á að þau byggi á upplýsingum, einkum um það sem gerist inni í skólastofum. Úr því er bætt með þessari rannsókn.
Heiti verkefnis: Starfshættir í grunnskólum
Verkefnisstjóri: Gerður G. Óskarsdóttir, Háskóla Íslands
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2009-2011
Fjárhæð styrks: 19,092 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: 090614
Niðurstöður rannsóknarinnar gefa ítarlega mynd af starfsháttum grunnskóla: Varpað er ljósi á viðhorf foreldra, nemenda og starfsmanna skóla til náms og kennslu. Lýst er námsumhverfi í skólabyggingum og skólastofum og stjórnun og skipulagi skólanna. Þá er dregin upp mynd af kennsluháttum svo og námi og viðhorfum nemenda til skólans. Loks er lýst samstarfi við foreldra, tengslum við grenndarsamfélagið og nýtingu upplýsinga- og samskiptatækni. Sérstök athugun á list- og verkgreinum í grunnskólum var hluti af rannsókninni.
Rannsóknin var unnin var af stórum hópi fræðimanna við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Byggt er á gögnum sem aflað var í 20 grunnskólum um landið með spurningakönnunum, vettvangslýsingum og viðtölum.
Það er von aðstandenda rannsóknarinnar að hún nýtist sveitarfélögum og einstökum grunnskólum í þróunarstarfi og mati á skólastarfi. Gagnasafn rannsóknarinnar mun einnig nýtast fræðimönnum til langtímarannsókna á starfsháttum í grunnskólum.
Væntanleg er bókin Grunnskólar í upphafi 21. aldar þar sem lýst er niðurstöðum rannsóknarinnar. Hún er skrifuð af 20 höfundum sem stóðu að verkefninu og kemur út á vegum Háskólaútgáfunnar. Greinar um niðurstöður hafa einnig verið birtar í innlendum og erlendum ritrýndum tímaritum.
Nánari upplýsingar veitir Gerður G. Óskarsdóttir, sími 899 3560 og netfang ggo@hi.is