Hagnýtt þyngdarfræði - verkefnislok
Verkefnið var unnið af rannsóknarhóp við Raunvísindastofnun og Norrænu rannsóknastofnunina í kennilegri eðlisfræði (Nordita) í Stokkhólmi. Fengist var við rannsóknir í kennilegri eðlisfræði á sviði þyngdarfræði og strengjafræði með áherslu á notkun þyngdarfræði til að lýsa sterkt víxlverkandi skammtakerfum á grundvelli svonefndrar AdS/CFT samsvörunar, sem er mjög virkt rannsóknasvið á alþjóðavettvangi.
Heiti verkefnis: Hagnýtt þyngdarfræði
Verkefnisstjóri: Lárus Thorlacius, Raunvísindastofnun Háskólans
Tegund styrks: Verkefnisstyrkur
Styrkár: 2010 – 2012
Fjárhæð styrks: 18,355 millj. kr. alls
Tilvísunarnúmer Rannís: 100006021
Meðal helstu viðfangsefna voru:
– tímaþróun utan varmajafnvægis í sterkt víxlverkandi skammtakerfum,
– þyngdarfræðilíkön með Lifshitz skölun og skammtafræðilegar fasabreytingar í þéttefnisfræði,
– þyngdarfræðileg lýsing á málmum og ofurleiðni.
Nýjar niðurstöður voru birtar í 7 greinum í ritrýndum alþjóðlegum tímaritum (ein tímaritsgrein til viðbótar bíður birtingar) og í einni ráðstefnugrein. Rannsóknahópurinn hélt fjölda fyrirlestra á alþjóðlegum ráðstefnum og við erlendar vísindastofnanir og tvær doktorsritgerðir í eðlisfræði við Háskóla Íslands byggðu á rannsóknum verkefnisins.
Greinar í ISI tímaritum:
- Erling Brynjólfsson, Ulf Danielsson, Lárus Thorlacius, Tobias Zingg, “Black Hole Thermodynamics and Heavy Fermion Metals,” Journal of High Energy Physics 1008 (2010) 027.
- Valentina G.M. Puletti, Sean Nowling, Lárus Thorlacius, Tobias Zingg, “Holographic Metals at Finite Temperature,” Journal of High Energy Physics 1101 (2011) 117.
- Tobias Zingg, “Thermodynamics of Dyonic Lifshitz Black Holes,” Journal of High Energy Physics 1109 (2011) 067.
- Valentina G.M. Puletti, Sean Nowling, Lárus Thorlacius, Tobias Zingg, “Friedel Oscillations in Holographic Metals,” Journal of High Energy Physics 1201 (2012) 073.
- Ville Keränen, Esko Keski-Vakkuri, Lárus Thorlacius, “Thermalization and Entanglement Following a Non-Relativistic Holographic Quench,” Physical Review D 85 (2012) 026005.
- Ville Keränen, Lárus Thorlacius, “Thermal Correlators in Holographic Models with Lifshitz Scaling,” Class. Quantum Gravity 29 (2012) 194009.
- Ville Keränen, “Non-Equilibrium Wilson Loops in N = 4 SYM,” handrit birt á http://arxiv.org/abs/1211.5087 (sent til birtingar í Journal of High Energy Physics).
- Vijay Balasubramanian, Alice Bernamonti, Ben Craps, Ville Keränen, Esko Keski-Vakkuri, Berndt Müller, Lárus Thorlacius, Joris Vanhoof, “Thermalization of the spectral function in strongly coupled two dimensional conformal field theories,” Journal of High Energy Physics 1304 (2013) 069.
Ráðstefnugrein:
- Erling Brynjólfsson, Ulf Danielsson, Lárus Thorlacius, Tobias Zingg, “Holographic Models with Anisotropic Scaling,” byggt á fyrirlestri verkefnisstjóra á ráðstefnunni 6th International Symposium on Quantum Theory and Symmetries, University of Kentucky, 20. – 25. júlí 2009, birt á alþjóðlegu vefsetri á slóðinni http://arxiv.org/abs/1004.5566
Doktorsritgerðir:
- Erling Jóhann Brynjólfsson, “Black Hole Thermodynamics and Non-Relativistic Holography,” Raunvísindadeild HÍ, 6. ágúst 2010.
- Tobias Zingg, “Holographic Models for Condensed Matter,” Raunvísindadeild HÍ, 2. september 2011.