Sérfræðingur í alþjóða- og nýsköpunarteymi

7.1.2021

Rannís óskar eftir sérfræðingi í fullt starf. Starfið felur í sér aðstoð og ráðgjöf við íslensk fyrirtæki og stofnanir sem nýta sér þjónustu Enterprise Europe Network eða sækja um í Tækniþróunarsjóð og Skattfrádrátt rannsókna- og þróunarverkefna.

Starfið felur í sér vinnu í tveimur teymum rannsókna- og nýsköpunarsviðs. Annars vegar í alþjóðateymi við verkefni sem Rannís tók við í ársbyrjun 2021 sem er Enterprise Europe Network. Um er að ræða ráðgjöf til fyrirtækja varðandi löggjöf, viðskiptareglur á milli landa, einkaleyfi og önnur hugverkaréttindi og styrkjamöguleika bæði innanlands og alþjóðlega. Hins vegar vinnu í nýsköpunarteymi sviðsins þar sem stærstu verkefnin eru rekstur Tækniþróunarsjóðs og Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna. Verkefnin í því teymi fela í sér almenna ráðgjöf til umsækjenda, yfirferð á umsóknum og afgreiðslu á skýrslum verkefna, auk heimsókna í fyrirtæki.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Þekking á íslensku rannsókna- og nýsköpunarumhverfi nauðsynleg. Reynsla af nýsköpun er kostur
  • Þekking á hugverkarétti og hagnýtingu rannsókna er æskileg
  • Mjög góð hæfni í greiningu og lausn vandamála
  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku bæði tal- og ritmáli
  • Góð kunnátta í Norðurlandamáli er kostur
  • Mjög góð færni í töflureikni er skilyrði ásamt færni í helstu Office forritum eða sambærilegu
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð ásamt góðri samskiptafærni áskilin
  • Metnaður til að ná árangri í starfi með því að sýna vönduð vinnubrögð, frumkvæði og veita góða þjónustu

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs, í síma 515 5830 eða netfanginu agust.h.ingthorsson@rannis.is.

Umsóknarfrestur er til kl. 12:00, miðvikudaginn 20. janúar 2021. Ekki er tekið við umsóknum eftir þann tíma.

Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini.

Ráðningarferli er í gangi.

Usækjendum er bent á að kynna sér starfsemi netsins á vefsíðu verkefnisins, Enterprise Europe Network og sjóðanna á vef Rannís; Tækniþróunarsjóður og Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum.

Við ráðningu í starfið verður tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís. Laun greiðast samkvæmt viðeigandi kjarasamningi við fjármálaráðuneytið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.

Rannís er líflegur vinnustaður með rúmlega 50 sérfræðingum sem starfa eftir gildum stofnunarinnar: Áhrif, fagmennska og samstarf. Hlutverk Rannís er að treysta stoðir íslensks samfélags með stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, menntun og menningu og styðja þekkingarsamfélagið með rekstri samkeppnissjóða, aðstoð og kynningu á alþjóðlegum sóknarfærum og samstarfsmöguleikum. Rannís greinir og kynnir áhrif rannsókna, menntunar og menningar á þjóðarhag og þjónustar undirbúning vísinda- og tæknistefnu.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica