Starfslaun listamanna 2019

15.8.2018

Auglýst eru til umsóknar starfslaun listamanna sem úthlutað verður árið 2019 í samræmi við ákvæði laga nr. 57/2009. 

Umsóknum skal skila í síðasta lagi mánudaginn 1. október fyrir miðnætti.

Þeir sjóðir sem hægt er að sækja um laun til eru þessir:

  • launasjóður hönnuða
  • launasjóður myndlistarmanna
  • launasjóður rithöfunda
  • launasjóður sviðslistafólks
  • launasjóður tónlistarflytjenda
  • launasjóður tónskálda


Umsóknir skiptast í eftirfarandi flokka:

  • Starfslaun fyrir einn listamann í einn launasjóð – eða fleiri, falli vinnan undir fleiri en einn sjóð.
  • Starfslaun fyrir skilgreint samstarf listamanna í einn launasjóð – eða fleiri, falli vinnan undir fleiri en einn sjóð.    
  • Starfslaun fyrir sviðslistamenn  – athugið að sviðslistahópaumsókn er felld inn í atvinnuleikhópaumsókn.

Umsókn um starfslaun, lög og reglugerðir og eyðublöð fyrir framvinduskýrslu eru á vefslóðinni www.listamannalaun.is. Nota þarf íslykil / rafræn skilríki við umsóknina.

Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður umsókn aðeins tekin til umfjöllunar ef framvinduskýrslu vegna síðustu úthlutunar hefur verið skilað til stjórnar listamannalauna, sbr. ákvæði 4. gr. laga um listamannalaun nr. 57/2009. 

  • Ferðastyrkir verða ekki veittir.
  • Eingöngu verður tekið við rafrænum fylgigögnum.

Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Zoëga á skrifstofu Rannís.

Senda fyrirspurn í tölvupósti









Þetta vefsvæði byggir á Eplica